Við lofum skemmtun í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Þátturinn verður 12-14 eins og alla laugardaga.
Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur um Pepsi-deildina, og Tómas Þór Þórðarson umsjónarmaður fara í skemmtilegan „draft" leik til gamans þar sem hlustendur setjast í dómarasætið. Tómas og Gummi Steinars léku sama leik í fyrra.
Tryggvi og Tómas setja upp eins sterkt lið og þeir telja í tískukerfi Íslands 4-2-3-1 úr leikmönnum Pepsi-deildarinnar. Kastað verður upp á hver á fyrsta valrétt.
Þeir ráða því sjálfir í hvaða röð þeir velja í stöður en Sami leikmaður má að sjálfsögðu ekki vera í báðum liðum svo menn þurfa að vera tilbúnir með kost B!
Hlustendur kjósa svo um hvort liðið væri sigurstranglegra ef þau myndu mætast með því að velja á @Fotboltinet á Twitter.
Annað í þættinum á morgun:
Besti leikmaður Inkasso-deildarinnar í umferðum 1-11, Keflvíkingurinn Sigurbergur Elísson, er gestur þáttarins.
Uppgjör umferða 1-11 í Pepsi-deildinni. Skoðað hverjir hafa skarað fram úr ásamt því að Vonbrigðalið deildarinnar verður opinberað.
Hitað upp fyrir komandi umferð í Pepsi-deildinni og Jóhann Laxdal, leikmaður Stjörnunnar, verður í símaviðtali.
Gefnir verða miðar á leik Víkings R. og KR sem fram fer á mánudag.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.
Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna
Athugasemdir