Guðmundur Steinn Hafsteinsson er nýjasti leikmaður ÍBV en hann skrifaði undir samning við félagið í dag.
Framherjinn kemur til Eyja frá Notodden en félagið spilar í norsku C-deildinni.
Sigurður Grétar Benónýsson er farinn til Bandaríkjanna og á Guðmundur að fylla skarð hans.
Guðmundur er fæddur árið 1989 en hann á alls 129 leiki á Íslandi og hefur hann skorað í þeim 34 mörk.
Hann hefur spilað Val, HK, Víking Ó. og Fram hér á landi.
Athugasemdir