Guillermo Varela, leikmaður Manchester United er farinn á lán til Eintracht Frankfurt.
Frankfurt spilar í þýsku Bundesligunni en hann var ekki í plönum Jose Mourinho fyrir komandi leiktíð.
Hinn 23 ára gamli Úrúgvæi var áður á láni hjá Real Madrid þar sem hann spilaði í varaliði félagsins en hann spilaði fyrir United gegn Wigan á undirbúningstímabilinu fyrir skemmstu.
Hann var hins vegar ekki í leikmannahópnum sem fór til Kína í frekari undirbúningi fyrir komandi tímabil.
Frankfurt liðið hafnaði í þriðja neðsta sæti á síðustu leiktíð en bjargaði sér frá falli með að vinna umspil í lok leiktíðar.
Athugasemdir