Gonzalo Higuain, framherji Napoli er á leiðinni í læknisskoðun hjá Juventus en hann er búinn að ganga frá kaupum og kjörum við ítalska liðið.
Napoli og Juventus hafa hins vegar ekki gengið frá samningum sín á milli en liðin eiga í viðræðum þessa stundina.
Higuain kom til Napoli frá Real Madrid árið 2013 en hann á tvö ár eftir af samningi sínum. Hann var markahæsti leikmaður Serie A á síðustu leiktíð með 36 mörk.
Higuain hefur einnig verið orðaður við ARsenal og Atletico en svo virðist sem Juventus sé búið að vinna kapphlaupið um hann.
Athugasemdir