Jurgen Klopp getur ekki beðið eftir að sýna stuðningsmönnum Liverpool hversu góður Georginio Wijnaldum, nýjasti leikmaður liðsins, er.
Hinn 25 ára Wijnaldum skrifaði undir fimm ára samning við Liverpool en hann kemur til félagsins frá Newcastle fyrir um 23 milljónir punda.
Klopp segist hafa fylgst með Wijnaldum lengi.
„Ég hef vitað af honum síðan hann var 16 eða 17 ára, þá sá ég hann spila í Hollandi en ég þekkti hann ekki sem manneskju fyrr en núna."
„Mér finnst gaman að fylgjast með leikmönnum og sérstaklega leikmönnum eins og honum. Hann er sérstakur leikmaður. Ég get ekki beðið eftir að sýna stuðningsmönnum Liverpool, hversu góður hann er," sagði Klopp.
Athugasemdir