Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 23. júlí 2016 09:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Luke Shaw með skilaboð til Demba Ba
Luke Shaw er hann meiddist.
Luke Shaw er hann meiddist.
Mynd: Getty Images
Luke Shaw, leikmaður Manchester United, hefur óskað Demba Ba góðum og fljótum bata en Ba fótbrotnaði skelfilega á dögunum.

Ba brotnaði í leik Shangai Shenhua gegn Shangai SPIG í kínversku deildinni, síðasta sunnudag og vakti myndband af atvikinu óhug margra.

Shaw er sjálfur nýkominn til baka eftir erfið meiðsli og veit nákvæmnlega hvað Ba er að ganga í gegnum.

Hann var þá í viðtali við MUTV eftir 4-1 tap Manchester United gegn Dortmund en hann gaf sér tíma til að koma skilaboðum áleiðis til framherjans.

„Hæ Demba, mér fannst mjög leiðinlegt að heyra um meiðslin þín, vonandi jafnaru þig sem fyrst," sagði Shaw.
Athugasemdir
banner