Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. júlí 2016 07:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Middlesbrough býður í leikmann Hull
Harry Maguire í baráttunni við Olivier Giroud.
Harry Maguire í baráttunni við Olivier Giroud.
Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur komið með boð upp á fjórar milljónir punda í Harry Maguire, varnarmann Hull City.

Aitor Karanka, stjóri Boro hefur áhuga á að styrkja vörnina sína en Middlesbrough er nýkomið upp í ensku úrvalsdelidina eftir margra ára fjarveru.

Neven Subotic, leikmaður Dortmund var nánast kominn til félagsins en hætt var við félagsskiptin vegna meiðsla Subotic.

Boro hefur því snúið sér að Magurie en hann spilaði 33 leiki fyrir Hull á siðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner