Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 23. júlí 2016 06:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Suarez segir Messi að halda áfram með landsliðinu
Luis Suarez vill sjá Messi spila áfram með landsliðinu.
Luis Suarez vill sjá Messi spila áfram með landsliðinu.
Mynd: Getty Images
Luis Suarez, samherji Lionel Messi hjá Barcelona, segir að Messi eigi að halda áfram að spila með argentínska landsliðinu en Messi hefur áður gefið það út að hann sé hættur að leika með liðinu.

Hann gaf það út er Argentína tapaði fyrir Síle í vítaspyrnukeppni í úrslitaleik Copa America.

Messi er aðeins 29 ára gamall og kom það ansi mörgum í opna skjöldu.

„Það er erfitt að hugsa sér að Messi sé hættur með landsliðinu. Hann elskar landlið sitt en maður skilur þá ákvörðun að hann hugsi mál sitt eftir svona svekkjandi tap."

„Ég væri til í að sjá hann halda áfram með liðinu og ég mun segja það við hann," sagði Suarez.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner