Xabi Alonso getur ekki beðið eftir að sjá Jose Mourinho og Pep Guardiola eigast við í ensku úrvalsdeildinni en þeir stýra nú Manchesterliðunum.
Alonso er einn af þeims em hefur unnið fyrir báða þjálfara en hann var undir stjórn Guardola hjá Bayern Munchen og þar áður hjá Mourinho í Real Madrid.
Hann hefur mikið álit á þeim báðum og hlakkar Spánverjanum til að sjá þá kljást.
„Þeir eru svipaðir persónuleikar, þeir vinna virkilega vel og hafa gríðarlega mikinn metnað. Þeir eru með risastóra persónuleika og eru leiðtogar," sagði Alonso.
„Það verður mjög spennandi að sjá þá spila við hvorn annan, sérstaklega þar sem þeir eru í sömu borg. Ég mun klárlega fylgjast með.""
Athugasemdir