Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. júlí 2017 20:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bjerregaard með 18 mörk frá 2010 - Skoraði í fyrsta leik með KR
Bjerregaard tókst ekki að skora mikið með Horsens
Bjerregaard tókst ekki að skora mikið með Horsens
Mynd: Getty Images
Andre Bjerregaard hoppaði inn í byrjunarlið KR í kvöld.

KR er að spila gegn Víkingi R. þessa stundina og er að vinna 2-0.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu

Tobias Thomsen kom KR yfir áður en Andre Bjerregaard bætti við. Hann var ekki lengi að stimpla sig inn.

Þetta er fyrsti leikurinn sem Bjerregard spilar fyrir KR, en hann kom frá danska úrvalsdeildarfélaginu Horsens á dögunum.

Þar skoraði hann 18 mörk í 157 leikjum frá árinu 2010.

Þrátt fyrir þessa litlu markaskorun var hann ekki lengi að skora fyrir KR. Nú er bara spurning hvort hann fylgi þessu á eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner