„Mér finnst við vera að gefa alltof auðveld mörk. Þetta eru barnaleg mistök og þau eru óþarfi," sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, framherji og aðstoðarþjálfari ÍBV, eftir 2-1 tapið gegn Fjölni í dag.
Lestu um leikinn: Fjölnir 2 - 1 ÍBV
Gunnar Heiðar skoraði mark ÍBV í dag en hann er núna kominn með fimm mörk í níu leikjum í sumar.
„Ég er kominn i toppform eiginlega í fyrsta skipti síðan ég kom heim. Ég meiddist stuttu eftir að ég var kominn heim og var alveg frá í fyrra. Maður er kominn í stand núna en það skiptir engu máli ef við töpum leikjunum."
„Ég vissi alltaf að ég gæti spilað ef ég myndi komast í stand. Þetta var meira spurning hvort ég hefði áhuga á því. Ég finn að ég á helling eftir og mér finnst ennþá gaman að spila fótbolta."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir