Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. júlí 2017 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Það breytir öllu ef Neymar fer til PSG
Neymar er mikið orðaður við PSG.
Neymar er mikið orðaður við PSG.
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Neymar gæti mögulega verið á leið til franska liðsins Paris Saint-Germain. Sky Sports greindi frá því í gær að 90% líkur væru á því að Neymar færi frá Barcelona í sumar og í dag segir Marca að leikmaðurinn hafi samþykkt sex ára samning.

PSG er víst tilbúið að borga riftunarverðið í samningi Neymar, rúmar 200 milljónir punda. Neymar yrði þá langdýrastur í sögunni.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var spurður út í þetta af blaðamönnum í gær. Klopp var þá undirbúa lið sitt fyrir úrslitaleik gegn Leicester á æfingamóti í Hong Kong. Liverpool vann leikinn 2-1.

„Ef satt reynist með Neymar, þá er það í rauninni ekki frá þessari plánetu lengur," sagði Klopp.

Hann botnar ekki þessa upphæð.

„Í alvöru? 220 milljónir evra? Ég trúi því ekki að það muni gerast. En ef það gerist, þá breytir það öllu."
Athugasemdir
banner
banner
banner