Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 23. júlí 2017 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Leikmenn munu frekar fara til PSG en Barcelona"
Mynd: Getty Images
Thomas Meunier, varnarmaður Paris Saint-Germain, er viss um það að PSG sé að verða eitt allra besta lið Evrópu.

Neymar, leikmaður Barcelona, er sagður vera nálægt því að fara til PSG. Ef satt reynist, þá yrði það rosaleg yfirlýsing fyrir Parísarliðið, sérstaklega eftir slakt síðasta tímabil.

PSG datt út í Meistaradeildinni gegn Barcelona eftir 6-1 tap á útivelli í einhverjum ótrúlegasta fótboltaleik í manna minnum. Liðið missti líka af franska meistaratitlinum til Mónakó.

Þrátt fyrir þetta slaka tímabil vonast félagið til þess að landa Alexis Sanchez frá Arsenal og Neymar í sumar.

Meunier, sem fór til PSG síðasta sumar, telur að þetta verði venjulegt í náinni framtíð. Að bestu leikmennirnir velji París.

„Ef félagið heldur áfram að vaxa eins og það hefur verið að gera, þá munu leikmenn ekki vilja fara til Barcelona, þeir munu frekar fara til PSG," sagði Meunier við Goal.com.
Athugasemdir
banner
banner
banner