Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 23. júlí 2017 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pedro fór heim með heilahristing
Pedro lenti í samstuði við David Ospina.
Pedro lenti í samstuði við David Ospina.
Mynd: Getty Images
Pedro er farinn heim úr æfingaferð Chelsea í Kína. Hann fékk heilahristing þegar Chelsea mætti Arsenal í gær.

Hinn 29 ára gamli Pedro fór beint upp á spítala eftir að hafa lent í samstuði við David Ospina, markvörð Arsenal.

Honum var haldið yfir nótt á spítalanum í Kína, en nú er hann á leið heim til Englands.

„Hann mun nú fara til Lundúna í frekar skoðanir," sagði í yfirlýsingu sem Chelsea birti.

Pedro birti mynd á samfélagsmiðlum þar sem hann greindi frá því að það væri allt í lagi með sig. Hér að neðan má sjá þessa mynd.

Chelsea fór frá Kína í dag, til Singapúr, en leikur liðsins í gær gegn Arsenal endaði með 3-0 öruggum sigri.


Athugasemdir
banner
banner
banner