Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 23. ágúst 2014 16:14
Jóhann Ingi Hafþórsson
Jose Mourinho: Áttum sigurinn skilið
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Chelsea var sáttur við 2-0 sigur sinna manna gegn Leicester, en viðurkenndi að liðið hefði getað spilað betur, þá sérstaklega í fyrri hálfleik.

,,Við spiluðum ekki vel í fyrri hálfleik. Leicester ætluðu að verja markið sitt og hræða okkur með skyndisóknum og við vorum hægir," sagði Mourinho.

,,Hægir að hreyfa boltann og hægir að hugsa og við þurftum að breyta því og við gerðum það. Við stjórnuðum leiknum algjörlega í seinni hálfleik."

,,Þeir fengu gott færi í stöðunni 0-0 en við fengum svo mörg færi til að skora og við áttum sigurinn skilið."
Athugasemdir
banner
banner
banner