Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. ágúst 2014 05:55
Grímur Már Þórólfsson
Valencia á eftir Martinez
Jackson Martinez
Jackson Martinez
Mynd: Getty Images
Valencia er á höttunum á eftir Jackson Martinez framherja Porto og Kolumbíu en talið er að félagið þurfi að greiða 35 milljónir evra til að fá kappann.

Félagið er á höttunum á eftir framherja og eru tilbúnir til að eyða 50 milljónum evra í einn slíkan og er Martinez efstur á listanum.

AC Milan hafa líka verið orðuð við leikmanninn og gætu veitt Valencia samkeppni en þeim vantar framherja í staðinn fyrir Mario Balotelli.

Valencia gæti þó þurft að selja leikmenn og eru leikmenn eins og Joao Pereira, Helder Postiga og Jonas taldir fáanlegir.
Athugasemdir
banner
banner
banner