Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 23. ágúst 2016 16:25
Magnús Már Einarsson
Asamoah Gyan liðsfélagi Ragga Sig hjá Fulham?
Asamoah Gyan.
Asamoah Gyan.
Mynd: Getty Images
Fulham hefur áhuga á að fá framherjann Asamoah Gyan í sínar raðir á láni frá Shanghai SIPG í Kína.

Ragnar Sigurðsson er að ganga í raðir Fulham og hann gæti spilað með hinum þrítuga Gyan hjá félaginu.

Gyan sló í gegn með landsliði Gana á HM 2010 og fór þaðan til Sunderland. Gyan stoppaði stutt við á Englandi áður en hann fór til Sameinuðu arabísku Furstadæmana og síðan til Kína í fyrra.

Gyan er á eftir Hulk í röðinni hjá Shanghai SIPG og hann er sagður vera opinn fyrir því að færa sig um set.

Samkvæmt frétt Sky eru viðræður í gangi og ef allt gengur upp þá gæti Gyan mætt í læknisskoðun hjá Fulham um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner