Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   þri 23. ágúst 2016 13:00
Arnar Geir Halldórsson
Dante til Nice (Staðfest)
Dante mættur til Frakklands
Dante mættur til Frakklands
Mynd: Getty Images
Brasilíski varnarmaðurinn Dante er genginn til liðs við franska úrvalsdeildarliðið Nice en hann kemur til liðsins frá Wolfsburg.

Þessi 32 ára gamli reynslubolti gerir þriggja ára samning við Nice en hann staldraði stutt við hjá Wolfsburg.

Dante lék með Bayern Munchen í þrjú ár við góðan orðstír áður en hann gekk í raðir Wolfsburg síðasta sumar. Hann lék 24 leiki í Bundesligunni í fyrra en Wolfsburg olli miklum vonbrigðum og endaði í áttunda sæti.

Dante þekkir vel til stjóra Nice, Lucien Favre, en þeir unnu saman hjá Borussia Mönchengladbach áður en Dante hélt til Bayern.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner