Trier 0-3 Borussia Dortmund
0-1 Shinji Kagawa (´8)
0-2 Shinji Kagawa (´33)
0-3 Andre Schurrle (´45)
0-1 Shinji Kagawa (´8)
0-2 Shinji Kagawa (´33)
0-3 Andre Schurrle (´45)
Borussia Dortmund lék sinn fyrsta mótsleik á þessu tímabili í gær þegar liðið heimsótti Eintracht Trier í þýska bikarnum.
Trier leikur í D-deild þýska boltans og áttu stórstjörnur Dortmund ekki í miklum vandræðum með neðrideildarliðið.
Japaninn Shinji Kagawa kom Dortmund í 2-0 á fyrsta hálftímanum og nýji maðurinn, Andre Schurrle, rak svo síðasta naglann í kistu Trier á lokamínútu fyrri hálfleiks.
Yfirburðir Dortmund voru algjörir og hafði liðið boltann 81% af leiknum enda stillti Thomas Tuchel upp mjög sterku byrjunarliði. Fyrsti leikur Dortmund í Bundesligunni er um næstu helgi þegar liðið fær Mainz í heimsókn.
Athugasemdir