„Við erum allir með sama takmark og það er að gera það besta fyrir landsliðið og Ísland," sagði Helgi Kolviðsson aðstoðarlandsliðsþjálfari við Fótbolta.net eftir að hópurinn var tilkynntu
Helgi hefur kynnt sér lið Úkraínu vel. Hann segir liðið vera sterkt þó að það hafi tapað öllum þremur leikjum sínum á EM í sumar.
„Þeir unnu alla fjóra æfingaleiki sína fyrir lokakeppnina og eru með sterkt lið. Það var vesen fyrir þá að mæta Þjóðverjum í fyrsta leik á EM. Þegar þú tapar fyrsta leiknum þá ertu undir mikilli pressu í öðrum leiknum og það er það sem gerðist."
„Við látum ekki blekkja okkur á því að þeir hafi tapað leikjunum þremur og ekki skorað mark. Þetta er sterkt lið."
„Þetta er mjög skipulagt lið. Það eru 8 leikmenn frá Shakhtar Donetsk í hópnum og 5 frá Dynamo Kiev. Ef þú ert með marga úr sama liðinu þá þekkja þeir hvorn annan og vita að hverju þeir ganga. Úkraínumenn eru líkamlega sterkir eisn og þeir hafa alltaf verið. Þeir eru hraðir og hafa mikla reynslu."
Fyrrum markaskorarinn Andriy Shevchenko er tekinn við sem landsliðsþjálfari Úkraínu „Það er eitt sem breytist ekki og það eru leikmennirnir. Þeir eru í sama klassa og við getum undirbúið okkur undir það. Við þurfum að gefa okkar strákum réttu upplýsingarnar," sagði Helgi.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar tjáir Helgi sig um kostina við það að leikurinn er leikinn fyrir luktum dyrum.
Athugasemdir