þri 23. ágúst 2016 09:00
Magnús Már Einarsson
Landsliðshópurinn tilkynntur í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, tilkynnir klukkan 13.15 í dag landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Úkraínu í undankeppni HM þann 5. september næstkomandi.

Um er að ræða fyrsta leik Íslands eftir EM og fyrsta leik liðsins síðan Heimir tók einn við sem þjálfari.

Fótbolti.net mun að sjálfsögðu vera á staðnum og hægt verður að fylgjast með gangi mála hér á síðunni sem og á Twitter síðu Fótbolta.net.

Leikir Íslands í undankeppninni á þessu ári:
5. september Úkraína - Ísland
6. október Finnland - Ísland
9. október Ísland-Tyrkland
12. nóvember Króatía - Ísland
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner