Brotist var inn á Twitter aðgang Barcelona klukkan 2 í nótt. Þar voru sett inn skilaboð þess efnis að félagið væri búið að kaupa Angel Di Maria frá PSG.
Um var að ræða hóp tölvuhakkara sem nefnist OurMine.
OurMine hefur oft brotist inn á Twitter aðganga hjá þekktum einstaklingum undanfarna mánuði og í nótt varð Barcelona fyrir barðinu á þeim.
Skilaboðin um Di Maria birtust klukkan 2:07 í nótt en klukkan rúmlega 4 náði Barcelona að eyða þeim og segja að um misskilning væri að ræða.

Our accounts have been hacked tonight.
— FC Barcelona (@FCBarcelona) August 23, 2017
We’re working to solve the problem as soon as possible.
Thanks for your patience.
Athugasemdir