Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. ágúst 2017 15:30
Magnús Már Einarsson
Gazzaniga til Tottenham (Staðfest)
Mynd: Tottenham
Tottenham hefur keypt markvörðinn Paulo Gazzaniga frá Southampton.

Gazzaniga skrifaði undir fimm ára samning en talið er að kaupverðið hljóði upp á tvær milljónir punda.

Hinn 25 ára gamli Gazzaniga verður væntanlega þriðji markvörður Tottenham á eftir Hugo Lloris og Michel Vorm.

Gazzaniga kom til Southampton árið 2012 en hann var í láni hjá Rayo Vallecano á Spáni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner