Eliaquim Mangala, varnarmaður Manchester City, ætlar að biðja forráðamenn félagsins um að leyfa sér að fara á lán til Inter. Þá mun Inter hafa möguleika á að kaupa Mangala þegar lánsamningurinn rennur út.
Þessi 26 ára Frakki hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá City síðan hann kom til félagsins árið 2014 fyrir tæpar 30 milljónir punda.
Hann var á láni hjá Valencia á Spáni á síðustu leiktíð en Valencia var ekki tilbúið að borga uppsett verð fyrir hann þegar lánsamningnum lauk.
Samkvæmt heimildarmönnum Sky á Ítalíu mun Mangala hitta forráðamenn City í dag og mun reyna að þrýsta á þá um að leyfa sér að fara til Inter.

Athugasemdir