Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. ágúst 2017 11:30
Magnús Már Einarsson
Óvíst hvort Ryan Mason spili fótbolta aftur
Mason fór illa út úr þessu skallaeinvígi.
Mason fór illa út úr þessu skallaeinvígi.
Mynd: Getty Images
Ennþá er óvíst hvort Ryan Mason, miðjumaður Hull, geti spilað fótbolta á nýjan leik.

Mason höfðkúbubrotnaði eftir samstuð við Gary Cahill í leik Hull og Chelsea í byrjun árs.

Mason hefur fengið mismunandi ráðleggingar frá læknum og í næstu viku mun hann hitta þriðja sérfræðinginn.

„Ryan er mikil hetja í mínum augum en núna er þetta ekki bara spurning um fótboltann heldur líka líf hans. Þetta er mjög alvarlegt," sagði Leonid Slutsky stjóri Hull.

„Hann vill spila en hann þarf að taka ákvörðun, ekki bara fyrir sjálfan sig heldur fjölskylduna líka. Þetta snýst um meira en bara fótbolta."
Athugasemdir
banner
banner