Félagaskiptaglugganum verður lokað um mánaðamótin. Football365 tók saman lista yfir tíu leikmenn sem vilja færa sig um set og eru í kapphlaupi við tímann.
10) Loic Remy (Chelsea) - Jú hann er enn í Chelsea og á ár eftir af samningi. Það er líka skiljanlegt að þú munir ekki eftir því að hann var lánaður til Crystal Palace á síðasta tímabili en gat aðeins spilað einn byrjunarliðsleik fyrir liðið í deildinni vegna meiðsla.
9) Robert Snodgrass (West Ham) - Átta mánuðum eftir að hann var keyptur á 10 milljónir punda vilja Hamrarnir losa sig við Snodgrass af launaskránni. Tilboðin í hann hafa verið af skornum skammti.
8) Alex Oxlade-Chamberlain (Arsenal) - Wenger vill halda Uxanum en hann sjálfur er ekki sannfærður um að það sé sér til góðs að vera áfram hjá Arsenal.
7) Lazar Markovic (Liverpool) - Floppaði í Bítlaborginni og Jurgen Klopp vill selja hann. 16 milljóna punda verðmiði Liverpool virðist fæla félög frá því að vilja leikmann sem hefur á tveimur síðustu tímabilum verið á láni hjá þremur mismunandi liðum, skorað fimm mörk í 32 leikjum fyrir Fenerbahce, Sporting Lissabon og Hull.
6) Fabian Delph (Manchester City) - City vill selja en Delph telur að hann eigi enn möguleika á að festa sig í sessi hjá City og vill vera lánaður.
5) Calum Chambers (Arsenal) - Komst ekki á bekkinn um síðustu helgi þrátt fyrir að Laurent Koscielny, Gabriel, Shkodran Mustafi og Per Mertesacker hafi verið fjarverandi.
4) Ross Barkley (Everton) - Hár verðmiði og miklar launakröfur, ofan á það meiðsli. Sumarglugginn hefur ekki farið eins og Ross Barkley vildi. Chelsea og Tottenham hafa sýnt áhuga en eru ekki til í að borga uppsett verð fyrir leikmanninn.
3) Mamadou Sakho (Liverpool) - Jurgen Klopp þrjóskast á því að nota ekki Sakho, sama þó margir séu á því að hann sé einmitt leikmaðurinn sem liðinu vantar sárlega. Liverpool er þó ekki tilbúið að selja hann ódýrt.
2) Virgil van Dijk (Southampton) - Hefur gert allt til að komast í burtu. Liverpool vill fá hann en Southampton vill ekki selja hann þangað. Leikmaðurinn er fúll og svo virðist sem niðurstaða sé ekki að fást í málið.
Athugasemdir