Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 23. ágúst 2017 06:00
Þórarinn Jónas Ásgeirsson
Umboðsmaður Candreva segir að hann verði áfram hjá Inter
Candreva verður áfram hjá Inter
Candreva verður áfram hjá Inter
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, ætlar sér að styrkja lið sitt áður en félagaskiptaglugginn lokar í enda þessa mánaðar. Chelsea hefur verið að eltast við nafna Conte, Antonio Candreva, í sumar en hann virðist ætla að vera áfram hjá Inter ef eitthvað er marka umboðsmann hans.

Conte þekkir til Candreva síðan hann þjálfaði ítalska landsliðið og hefur mikinn áhuga á að vinna með honum aftur.

Candreva gekk til liðs við Inter síðasta sumar frá Lazio og skoraði hann sex mörk og lagði upp tíu önnur á sínu fyrsta tímabili hjá Inter.

„Candreva telur að hann muni vera áfram. Það er hans vilji að vera áfram hjá Inter og klúbburinn og þjálfarinn, Luciano Spalletti, hafa sagt það sama. Þannig að ég tel að hann verði áfram hjá Inter, en Chelsea hafði áhuga á honum í janúar," sagði Federico Pastorello, umboðsmaður Candreva, í samtali við Rai á Ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner