Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 23. ágúst 2017 11:00
Magnús Már Einarsson
Walker-Peters framlengir við Tottenham
Mynd: Getty Images
Kyle Walker-Peters hefur skrifað undir nýjan samning við Tottenham sem gildir til ársins 2020.

Hinn tvítugi Walker-Peters spilaði fyrsta leik Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Í augnablikinu eru hann og Kieran Trippier einu hægri bakverðirnir í aðalliði Tottenham eftir að Kyle Walker var seldur til Manchester City á 50 milljónir punda.

Í gær bárust fréttir af því að Tottenham vilji kaupa hægri bakvörðinn Serge Aurier en hann gæti komið til félagsins frá PSG.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner