Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 23. september 2014 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Arsenal mætir Southampton
Mynd: Getty Images
Það eru tíu leikir á dagskrá í enska deildabikarnum í dag þar sem stærsti leikurinn verður á Emirates þegar Arsenal tekur á móti Southampton.

Liverpool á heimaleik við Middlesbrough, Everton heimsækir Gylfa Þór og félaga í Swansea á meðan Aron Einar og félagar í Cardiff City eiga heimaleik gegn Bournemouth.

MK Dons, sem sló Manchester United sannfærandi úr leik, á heimaleik gegn Bradford og Sunderland tekur á móti Stoke City. Þá heimsækir Norwich fjórðudeildarlið Shrewsbury.

Chelsea, Manchester City og Tottenham eru meðal þeirra liða sem eiga svo leik á morgun.

Leikir dagsins:
18:45 Arsenal - Southampton
18:45 Liverpool - Middlesbrough (Beint á Stöð 2 Sport)
18:45 Swansea - Everton (Beint á Stöð 2 Sport 2)
18:45 Sunderland - Stoke City
18:45 Cardiff City - Bournemouth
18:45 Derby - Reading
18:45 Leyton Orient - Sheffield United
18:45 MK Dons - Bradford
18:45 Shrewsbury - Norwich
18:45 Fulham - Doncaster
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner