Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. september 2014 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Milan heimsækir Empoli
Mynd: Getty Images
Það er aðeins einn leikur á dagskrá í ítalska boltanum í kvöld þar sem Empoli tekur á móti AC Milan.

Milan er með sex stig eftir þrjár umferðir á meðan nýliðar Empoli eru aðeins með eitt stig.

Leikinn er ekki hægt að sjá á íslenskum sjónvarpsstöðvum en hægt er að nálgast hann á ýmsum erlendum stöðvum og á veraldarvefnum.

Milan er með spennandi lið á tímabilinu og er þegar búið að leggja Parma og Lazio af velli, en eina tap liðsins kom gegn ríkjandi meisturum Juventus.

Leikur kvöldsins:
18:45 Empoli - AC Milan
Athugasemdir
banner
banner