Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. september 2014 19:15
Alexander Freyr Tamimi
Vine-myndband: „Næsti Steven Gerrard“ skoraði í fyrsta leik
Hinn 17 ára Jordan Rossiter fagnar marki sínu.
Hinn 17 ára Jordan Rossiter fagnar marki sínu.
Mynd: Getty Images
Jordan Rossiter er einungis 17 ára gamall og fékk tækifærið til að spila sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir Liverpool gegn Middlesbrough í deildabikarnum í kvöld.

Rossiter þakkaði heldur betur pent fyrir tækifærið og skoraði í sínum fyrsta leik með glæsilegu skoti af löngu færi.

Markvörður Middlesbrough var mættur nánast úr úr teig og hreinsaði boltann, þó ekki lengra en til Rossiter sem skaut svellkaldur í fyrsta og hnitmiðað skotið endaði í markinu.

Rossiter er aðeins 40 dögum frá því að vera yngsti markaskorari Liverpool í sögunni, en það met á sjálfur Michael Owen.

Miklar vonir eru bundnar við Rossiter í Bítlaborginni, en hann er talinn geta orðið jafn góður og Steven nokkur Gerrard.


Athugasemdir
banner
banner
banner