Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 23. september 2014 10:36
Magnús Már Einarsson
Sandro meiddist við að fagna marki á æfingu
Sandro var hæstánægður með markið sitt á æfingu.
Sandro var hæstánægður með markið sitt á æfingu.
Mynd: Getty Images
Sandro, miðjumaður QPR, missti af leik liðsins gegn Stoke um helgina eftir afar óvenjuleg meiðsli.

Brasilíumaðurinn skoraði mark á æfingu og var svo ánægður að hann ákvað að fagna með því að renna sér á hnjánum.

Það endaði hins vegar á versta veg því Sandro meiddist og óvíst er hversu lengi hann verður frá.

,,Sandro meiddist á hné eftir að hafa skorað mark á æfingu og rennt sér á þurrum vellinum þegar hann var að fagna," sagði Harry Redknapp stjóri QPR.
Athugasemdir
banner
banner
banner