Emil Hallfreðsson missti föður sinn, Hallfreð Emilsson, og hefur Verona, félagið sem Emil leikur með á Ítalíu, hætt við fréttamannafund fyrir leik liðsins gegn Genoa.
Verona mætir Genoa á miðvikudaginn en fréttamannafundurinn átti að vera haldinn síðar í dag.
Verona mætir Genoa á miðvikudaginn en fréttamannafundurinn átti að vera haldinn síðar í dag.
,,Við erum með þér, Emil. Við viljum að þú finnir ást okkar, styrk og hjarta," stendur í bréfi frá félaginu.
Verona hefur þá beðið um að fá að spila með sorgarbönd í leiknum gegn Genoa.
Emil er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Verona og er Facebook veggur Íslendingsins stútfullt af kveðjum á ítölsku.
Emil var ekki í leikmannahóp í sigri Verona á Torino um helgina og við hjá Fótbolta.net sendum Emil og fjölskyldu hans samúðarkveðjur.
Athugasemdir