Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 23. september 2017 13:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eriksen bætti markamet Nicklas Bendtner
Mynd: Getty Images
Christian Eriksen, leikmaður Tottenham, er núna markahæsti danski leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Eriksen skoraði sitt 33. mark í ensku úrvalsdeildinni þegar hann skoraði eitt af þremur mörkum Tottenham gegn West Ham í dag.

Hann bætti þar með met sem Nicklas Bendtner, fyrrum leikmaður Arsenal, hafði sett.

Bendtner skoraði á sínum 32 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði 24 mörk með Arsenal, en hann setti einnig átta þegar hann lék sem lánsmaður hjá Sunderland.

Bendtner er í miklu uppáhaldi hjá fótboltaáhugamönnum, en það eru væntanlega einhverjir svekktir að sjá hann missa þetta met.



Athugasemdir
banner
banner