Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 23. september 2017 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gabriel Jesus: Gæti borðað bakkelsi allan daginn
Mynd: Getty Images
„Ég verð að vera betri í því að borða hollan mat." Þetta segir brasilíski framherjinn Gabiel Jesus.

Jesus hefur verið í lykilhlutverki síðan hann kom til Manchester City í janúar á síðasta ári og staðið sig vel.

Á þessu tímabili hefur hann myndað sterkt framherjapar með Sergio Aguero, en þeir hafa verið duglegir að skora mörk.

Ef það væri eitthvað sem Jesus væri til í að bæta sig í þá væri það að borða hollan mat. Hann viðurkennir í samtali við götublaðið The Sun að hann gæti borðað bakkelsi og pizzur allan liðlangan daginn.

„Ef ég er á ferðalagi, þá borða ég slæma hluti eins og pizzur og bakkelsi. Ég gæti borðað bakkelsi allan daginn," segir Jesus.

Hann óttast að fá skammir frá móður sinni.

„Ég þarf að borða betur núna, annars mun mamma skamma mig."
Athugasemdir
banner
banner
banner