Þær Maruschka Waldus og Brooke Hendrix voru ekki í leikmannahópi Fylkis gegn ÍBV í gær en þær hafa leikið sinn síðasta leik fyrir Fylki á tímabilinu.
Báðar komu þær til Árbæjarliðsins í félagaskiptaglugganum og stóðu sig vel í þeim sex leikjum sem þær spiluðu fyrir Fylki.
Öflug innkoma þeirra og Kaitlyn Johnson dugði þó ekki til að bjarga Fylkisliðinu frá falli en það skýrðist endanlega eftir 3-1 tap gegn KR þann 6. september síðastliðinn að Fylkir héldi ekki sæti sínu í deildinni.
Hin hollenska Maruschka og hin bandaríska Brooke fengu því leyfi til að semja við ný lið og eru farnar af landi brott. Maruschka til Ástralíu og Brooke til Ítalíu.
Ungir og efnilegir leikmenn fengu tækifæri í byrjunarliði Fylkis í þeirra stað í gær en leiknum í Eyjum lauk með markalausu jafntefli.
Athugasemdir