Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 23. september 2017 22:45
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Jón Daði tileinkar mömmu sinni markið
Jón Daði er leikmaður Reading.
Jón Daði er leikmaður Reading.
Mynd: Heimasíða Reading
Jón Daði Böðvarsson og félagar í Reading fengu Hull City í heimsókn í dag í ensku Championship-deildinni.

Hull City komst yfir í fyrri hálfleik með marki frá Fraizer Campbell, það var hins vegar Jón Daði Böðvarsson sem bjargaði stigi fyrir Reading þegar hann skoraði á 87. mínútu.

Eftir leikinn fór Jón Daði í viðtal þar sem hann tileinkaði mömmu sinni markið sem hann skoraði í dag.

Reading er eftir jafnteflið í dag með 9 stig í 18. sæti, jafnt Hull City og Burton að stigum.

Hér að neðan má sjá fyrrnefnt viðtal við Jón Daða.



Athugasemdir
banner
banner