„Mér fannst þetta bara skelfilegt. Fyrri hálfleikurinn hjá okkur var út úr kortinu. Við vorum ekki mættar til leiks en við löguðum ákveðna hluti í seinni hálfleik og spiluðum betur boltanum en við fáum ekkert rosalega mörg færi í seinni hálfleik,“ sagði Katrín Ásbjörnsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, eftir 2-0 tap gegn Breiðablik.
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 2 Breiðablik
Veðrið hafði áhrif á gæði leiksins en Katrín vildi þó ekki nota það sem afsökun fyrir leik liðsins.
„Þetta er eins fyrir bæði lið. Við hefðum mátt nýta okkur veðrið aðeins betur og vera skynsamar á síðasta þriðjungi. Ákvörðunartökur hjá okkur voru ekki góðar í dag. Það er ýmislegt sem þarf að laga. Við þurfum að gera það og klára þetta mót með sæmd og vinna Fylki í síðasta leik.“
Fjórar breytingar voru gerðar á byrjunarliði Stjörnunnar frá síðasta leik en lykilmenn meiddust í bikarúrslitaleiknum fyrir tveimur vikum. Hafði það áhrif á taktinn í Stjörnuliðinu?
„Það ætti nú ekki að gera það en við missum mikilvægan leikmann í Önu. Hún er með heilahristing eftir bikarleikinn en við erum með stóran og breiðan hóp og búnar að æfa saman lengi. Þannig að það ætti ekki að hafa áhrif,“ sagði Katrín og bætti við að Ana væri aðeins farin að skokka en færi varlega af stað með það að markmiði að geta tekið þátt í Meistaradeildarleikjunum sem framundan eru.
Nú er ein umferð eftir af Pepsi-deildinni. Hvernig verður fyrir Stjörnukonur að gíra sig upp í hann eftir vonbrigðasumar?
„Við ætlum að nýta þann leik fyrir Meistaradeildina og bæta það sem við gerðum hér í dag. Við vitum að við eigum fullt inni og við erum vel spilandi lið. Við höfum verið að gera góða hluti í sumar þó við höfum ekki verið að vinna. Við verðum að byggja ofan á það og taka það sem var jákvætt í þessum leik, þó það hafi kannski ekki verið mikið, og vinna Fylki og klára þetta með sæmd,“ sagði Katrín en nánar er rætt við hana í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir