Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   lau 23. september 2017 17:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lárus Orri: Vil að Guðni Bergs reddi dómaramálunum
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Við stjórnuðum leiknum frá upphafsmínútu og til enda. Þetta var síðst of stór sigur," sagði Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari Þórs, eftir 2-0 sigur á Leikni F. í Fjarðabyggðarhöllinni í dag.

„Við fengum helling af dauðafærum og áttum að skora fleiri mörk. Sigurinn var aldrei í hættu."

Lestu um leikinn: Leiknir F. 0 -  3 Þór

Þórsarar enda þetta tímabil í fimmta sæti Inkasso-deildarinnar. Hefði Lárus tekið þessu fyrir tímabilið?

„Nei, það held ég ekki. Þetta er búið að vera erfitt tímabil hjá okkur og það hefur gengið á ýmsu. Nú lítum við til baka og skoðum hvað fór úrskeið og hvað fór vel og reynum að koma betri á næsta tímabili," sagði Lárus sem vildi síðan bæta við einu.

„Það er alltaf verið að gagnrýna mann eftir tapleiki þegar maður setur út á dómarana, en ég held að þessir ágætu menn sem dæmdu leikinn í dag hafi verið engan veginn tilbúnir til að takast á við þetta verkefni. Það er ekki þeim að kenna, þeir hefðu þurft öðruvísi verkefni til þess að verða betri dómarar til þess að komast upp í leiki Inkasso-deildinni. Enn og aftur segi ég við KSÍ að það verði að fara að gera eitthvað í þessum dómaramálum."

„Þeir eru ekki búnir að vera góðir í sumar og það þýðir ekki fyrir dómara að fara í fýlu við mig þegar ég gagnrýni þá."

„Ég vil að Guðni Bergs hætti að einbeita sér að stöðu yfirmanns knattspyrnumála og reddi dómaramálunum."

Sjáðu viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner