Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 23. september 2017 17:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho: Southampton á hrós skilið
Mynd: Getty Images
„Við getum ekki alltaf spilað upp á okkar besta, en við börðumst fyrir þessu," sagði Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, eftir nauman 1-0 sigur á Southampton í dag.

Romelu Lukaku skoraði eina mark leiksins á 20. mínútu, en Southampton var óheppið að fá ekki neitt út úr leiknum.

„Við gerðum það sem mörg lið í ensku úrvalsdeildinni gera í 90 mínútur, sem var að spila með fimm manna varnarlínu."

„Southampton á hrós skilið, þeir reyndu að spila fótbolta. Þetta var erfiður leikur en ég er mjög ánægður."

Mourinho hrósaði svo Lukaku, sem skoraði sigurmarkið.

„Sú vinna sem hann (Lukaku) vinnur fyrir okkur er svo mikilvæg. Hann skoraði markið og lagði sig gríðarlega fram."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner