Jose Mourinho segir að það sé enn langt í það að bakvörðurinn Luke Shaw verði 100% tilbúinn.
Shaw spilaði 45 mínútur gegn Burton Albion í deildabikarnum á miðvikudaginn, en hann hefur verið mjög mikið meiddur frá því hann kom til United frá Southampton árið 2014.
Shaw spilaði 45 mínútur gegn Burton Albion í deildabikarnum á miðvikudaginn, en hann hefur verið mjög mikið meiddur frá því hann kom til United frá Southampton árið 2014.
Mourinho gagnrýndi Shaw opinberlega á síðasta tímabili, en hann segir að hann verði að leggja hart að sér ef hann ætlar að eiga einhvern möguleika á því að vinna sér inn sæti í liði Man Utd.
„Hann verður að vinna," sagði Mourinho á blaðamannafundi í gær þegar hann var spurður út í Shaw.
„Hann verður að vinna og hann verður að bæta sig. Mun hann spila á morgun (í dag)? Nei, hann mun ekki gera það."
Manchester United heimsækir Southampton í dag, en Luke Shaw mun ekki koma við sögu í þeim leik.
Athugasemdir