Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. september 2017 19:02
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Sviss: Guðlaugur Victor lék allan leikinn í tapi
Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson.
Mynd: Getty Images
Basel 1-0 Zürich
1-0 Dimitri Oberlin ('62)

Guðlaugur Victor Pálsson og félagar í Zürich mættu Basel í dag í svissnesku deildinni.

Þar höfðu heimamenn í Basel betur, 1-0. Eina mark leiksins var skorað í seinni hálfleik.

Dimitri Oberlin sá til þess að Basel tók stigin þrjú í dag, hann skoraði markið á 62. mínútu.

Basel jafnaði Zürich að stigum með sigrinum, liðin eru með 14 stig í öðru og þriðja sæti, Zürich er fyrir ofan Basel á markatölu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner