Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 23. september 2017 12:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Terry sendir Diego Costa fallega kveðju - „Á eftir að sakna þín"
Mynd: Getty Images
Þrátt fyrir að hafa yfirgefið Chelsea í sumar þá heldur John Terry, fyrrum fyrirliði liðsins, sambandi við gömlu liðsfélagana. Í vikunni sendi hann Brasilíumanninum Willian áritaða treyju.

Terry hefur núna sent fallega kveðju á Diego Costa, sem er reyndar að fara frá Chelsea og ganga í raðir Atletico Madrid.

„Gangi þér vel Diego Costa í næsta verkefni þínu, vinur minn," skrifar Terry við færslu á Instagram.

„Ótrúlegur leikmaður og einn fyndnasti og indælasti náungi sem ég hef hitt í fótbolta, að spila á móti honum á æfingu og í leikjum var algjör martröð, einn sá besti og vanmetnasti sem ég hef spilað með og á móti," heldur Terry áfram.

„Ég á eftir að sakna þín vinur. Gangi þér og fjölskyldu þinni allt í haginn. JT." 💙 @chelseafc 🏆

Costa er að fara aftur til Atletico Madrid eftir að hafa leikið með Chelsea í þrjú ár. Hann var ekki inn í myndinni hjá Antonio Conte, stjóra Chelsea, fyrir þetta tímabil og ákvað því að snúa aftur heim til Atletico þar sem hann spilaði áður en hann fór til Chelsea.


Athugasemdir
banner
banner