Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. september 2017 18:31
Kristófer Jónsson
Þýskaland: Dortmund fór illa með Mönchengladbach
Aubameyang skoraði þrennu í dag
Aubameyang skoraði þrennu í dag
Mynd: Getty Images
Síðasta leik dagsins í þýsku Bundesligunni var að ljúka þar sem að Borussia Dortmund fóru vægast sagt illa Borussia Mönchengladbach en leikurinn endaði með 6-1 sigri Dortmund.

Maximilian Philipp kom Dortmund yfir eftir 28 mínútur og var svo aftur á ferðinni 10 mínútum síðar. Það var svo markahrókurinn Pierre-Emerick Aubameyang sem að bætti við þriðja markinu rétt fyrir lok fyrri hálfleiks.

Aubameyang átti svo heldur betur eftir að koma meira við sögu í þessum leik en á 49.mínútu bætti hann við sínu öðru marki og staðan orðin 4-0 fyrir Dortmund.

Hann náði síðan að fullkomna þrennu eftir rúmlega klukkutíma leik áður en að Lars Stindl náði að minnka muninn fyrir gestina. Síðasta mark leiksins átti hins vegar Julian Weigl og 6-1 sigur Dortmund staðreynd.

Eftir þennan leik sitja Dortmund í efsta sæti deildarinnar með 16 stig en Moenchengladbach sitja hinsvegar í 9.sæti með 8 stig.

Borussia D. 6 - 1 Borussia M.
1-0 Maximilian Philipp ('28 )
2-0 Maximilian Philipp ('38 )
3-0 Pierre Emerick Aubameyang ('45 )
4-0 Pierre Emerick Aubameyang ('49 )
5-0 Pierre Emerick Aubameyang ('63 )
5-1 Lars Stindl ('66 )
6-1 Julian Weigl ('79 )
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 29 25 4 0 74 19 +55 79
2 Bayern 29 20 3 6 82 36 +46 63
3 Stuttgart 29 20 3 6 67 34 +33 63
4 RB Leipzig 29 17 5 7 67 33 +34 56
5 Dortmund 29 16 8 5 57 34 +23 56
6 Eintracht Frankfurt 29 10 12 7 43 39 +4 42
7 Augsburg 29 10 9 10 47 46 +1 39
8 Freiburg 29 11 6 12 41 52 -11 39
9 Hoffenheim 29 10 6 13 49 57 -8 36
10 Heidenheim 29 8 10 11 42 50 -8 34
11 Gladbach 29 7 10 12 50 56 -6 31
12 Werder 29 8 7 14 36 49 -13 31
13 Union Berlin 29 8 5 16 25 45 -20 29
14 Wolfsburg 29 7 7 15 34 50 -16 28
15 Bochum 29 5 12 12 34 59 -25 27
16 Mainz 29 5 11 13 30 47 -17 26
17 Köln 29 4 10 15 23 51 -28 22
18 Darmstadt 29 2 8 19 28 72 -44 14
Athugasemdir
banner