Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 í dag. Nú er hægt að nálgast þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Upptökur af þáttunum koma inn á Vísi
Upptökur af þáttunum koma inn á Vísi
Þeir skoðuðu helstu fréttir og slúður úr íslenska boltanum og rýndu í 21. umferðina sem verður á morgun sunnudag.
Þá var Íslandsmeistarapartí í þættinum. Guðjón Pétur Lýðsson og Haukur Páll Sigurðsson, leikmenn Vals, mættu í hljóðver en þeir hafa verið meðal bestu leikmanna deildarinnar í sumar.
Þá var Börkur Edvardsson formaður Vals á línunni.
En það var ekki eintóm gleði á dagskránni. Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var meðal viðmælanda. Skagamenn féllu formlega á fimmtudaginn.
Athugasemdir