Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 23. október 2014 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Elísabet og Lejla í KR - tvær framlengja (Staðfest)
KR er að styrkja sig fyrir átökin í Pepsi-deildinni næsta sumar.
KR er að styrkja sig fyrir átökin í Pepsi-deildinni næsta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elísbet Guðmundsdóttir er gengin í raðir nýliða KR í Pepsi-deild kvenna en hún kemur frá FH sem féll úr deildinni í sumar.

Elísabet ætti að vera öllum hnútum kunnug hjá KR því þar lék hún nýliðið sumar á láni frá FH. Hún skoraði þá eitt mark í 16 leikjum með KR í 1. deild kvenna og Borgunarbikarnum.

Þá hefur félagið einnig fengið til liðs við sig Lejla Cardaklija frá Sindra á Hornfafirði. Lejla hefur alla tíð leikið með Sindra, en missti þó af mótinu í ár vegna meiðsla.

Lejla leikur ýmist á miðjunni eða í vörninni og skoraði fimm mörk í 87 deildar- og bikarleikjum með Sindra.

Þá hefur KR framlengt samninga við tvo leikmenn, Sigríði Maríu Sigurðardóttur og Sigrúnu Birtu Kristinsdóttur. Þær gerðu báðar eins árs samning við félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner