Finnur Orri Margeirsson, fyrirliði Breiðabliks, liggur undir feld þessa dagana og íhugar framtíð sína í fótboltanum.
Finnur Orri hefur rætt við tvö önnur félög fyrir utan Blika en samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru það FH og KR.
Finnur Orri hefur rætt við tvö önnur félög fyrir utan Blika en samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru það FH og KR.
,,Ég hef heyrt í tveimur öðrum félögum og ég á eftir að taka ákvörðun. Þetta ætti að koma á næstu dögum," sagði Finnur við Fótbolta.net í dag.
,,Það eru aðrir spennandi hlutir í boði en að sama skapi er Breiðablik líka spennandi. Maður þarf að vega og meta kostina og hvað er best fyrir sjálfan mann."
,,Þetta er stór ákvörðun fyrir mig og ég er ekki búinn að fá svarið hjá sjálfum mér."
Finnur Orri er 23 ára gamall en hann hefur leikið með Blikum allan sinn feril.
Athugasemdir