banner
   fim 23. október 2014 21:12
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Kane fékk mark á sig eftir að hafa skorað þrennu
Hugo Llrois lætur Harry Kane fá markmannstreyjuna eftir að hafa verið rekinn af velli.
Hugo Llrois lætur Harry Kane fá markmannstreyjuna eftir að hafa verið rekinn af velli.
Mynd: Getty Images
Harry Kane skoraði þrjú mörk í 5-1 sigri Tottenham gegn Asteras Tripolis í toppslag C-riðils Evrópudeildarinnar.

Hugo Llrois var góður í marki heimamanna í leiknum og átti meðal annars eina heimsklassa markvörslu í síðari hálfleik.

Það var undir lok leiksins sem Lloris hljóp úr eigin vítateig til að vera á undan sóknarmanni andstæðinga til boltans. Sóknarmaðurinn vann kapphlaupið og Lloris gerðist sekur um að brjóta á.

Markvörðurinn franski fékk rautt spjald og því þurfti hetja leiksins, sóknarmaðurinn Kane, að fara í markið.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af frumraun Harry Kane í marki þar sem hann missir auðvelda aukaspyrnu undir sig og í netið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner