Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 23. október 2014 17:30
Magnús Már Einarsson
Ronaldo: Er að spila gegn Barcelona en ekki Messi
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, gerir lítið úr einvígi sínu við Lionel Messi leikmann Barcelona fyrir leik liðanna á laugardag.

,,Ég er ekki að fara að spila við Messi. Ég er að fara að spila við Barcelona," sagði Ronaldo.

Real Madrid spilaði við Liverpool á útivelli í gærkvöldi og Ronaldo er ósáttur við að El Clasico fari fram klukkan 16:00 á laugardag.

,,Ég skil ekki af hverju þeir settu leikinn á laugardag," sagði Ronaldo.

,,Þetta er erfiður leikur og allir fótboltamenn vita að auka dagur í hvíld er mikilvægur. Ég vil samt ekki koma með afsakanir því að liðið er í fínu lagi og með gott sjálfstraust."
Athugasemdir
banner