Það eru mikil læti í Lille í Frakklandi þar sem heimamenn taka á móti Everton í Evrópudeildinni í dag. Slagsmál brutust út í gærkvöldi og ólætin héldu áfram í dag.
Árás var gerð á hóp stuðningsmanna Everton sem var staddur á bar í miðbænum. Lögreglan var fljót á vettvang og beitti táragasi.
Árás var gerð á hóp stuðningsmanna Everton sem var staddur á bar í miðbænum. Lögreglan var fljót á vettvang og beitti táragasi.
Að minnsta kostir tveir stuðningsmenn Everton leituðu aðstoðar á sjúkrahúsi vegna minniháttar áverka en einhver höfuðmeiðsl hlutust.
Talið er að um 5.500 stuðningsmenn Everton verði á vellinum í dag en leikurinn hefst 17:00 og er sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.
Dyravörður á umræddum bar segir að um 50 Frakkar hafi skyndilega gert árás á stuðningsmannahópinn. Stólar voru notaðir í slagsmálunum, meðal annars til að brjóta rúður á barnum til að komast inn á hann.
„Ég sá einn eldri Englending sem var kýldur af þremur Lille-stuðningsmönnum. Það blæddi duglega úr andliti hans. Mér líður mjög illa yfir því sem gerðist," segir dyravörðurinn.
Absolutely disgusting behaviour from Lille police. Targeting/dispersing Evertonians for no reason via @GuillerezJS pic.twitter.com/aWRtYNEX5X
— GrandOldTeam.com (@grandoldteam) October 23, 2014
We advise Everton fans in Lille to avoid the main square in the city centre.
— Everton (@Everton) October 23, 2014
Athugasemdir